DAGS

19.05.2026

Kl.

BROTTFÖR Kl.

ERFIÐLEIKASTIG

Fararstjórn:

Lýsing

"Hristum af okkur slenið og tökum fagnandi á móti nýju göngusumri"

Vorverkefni FFA að þessu sinni fékk nafnið „Hnjúkar, Búkar og Dalsbotnar“ 


19. maí til 21. júní 2026

Verkefnið er byggt upp á átta ferðum, fjórum styttri og fjórum lengri sem allar styrkja líkama og sál.

Verkefnið er fyrir alla sem sem eru í þokkalegu gönguformi og miðast erfiðleikastig og gönguhraði ferða við tvo til þrjá skó. 

Byrjað verður rólega til að allir geti fundið sinn takt.


Umsjón með verkefninu hafa Gunnar Már Gunnarsson , formaður FFA og Þórhallur Guðmundsson sjúkraþjálfari.  Alltaf verða tveir fararstjórar. 

Vel verður haldið utan um hópinn með öruggri fararstjórn, facebókarsíðu og góðri upplýsingagjöf.

Lágmarksfjöldi er 12 manns.


Verð: 33.000 kr. fyrir félaga í FFA og FÍ. Makar félagsmanna greiða sömu upphæð. Fyrir utan¬félagsmenn kostar námskeiðið 38.000 kr. 

Greiða þarf þegar skráningu lýkur, krafa verður stofnuð í netbanka.


Skráningu lýkur 13. maí 2026


Meira um verkefnið hér




Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Gönguferðir: 2 skór

    Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.


    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi

    Göngustafir ef vill

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt

    Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.